Jonas 800x600px@1.5x-100.jpg

Jónas Sig 25. júlí í samvinnu við Hjarta Hafnarfjarðar

Jónas Sig -

25. júlí 2024 kl 19:00

Í samvinnu við Hjarta Hafnarfjarðar

Jónas Sig snýr aftur í Bæjarbíó eftir langt hlé með hljómsveitina sína og verður nú með tónleika í Hjarta Hafnarfjarðar á Hjarta Hafnarfjarðar hátíðinni. Jónas þarf vart að kynna fyrir góðvinum Bæjarbíós enda hefur hann og hljómsveitir hans spilar fyrir fullu húsi hverja tónleikana á fætur öðrum í árana rás í Bæjarbíó og margar göldróttar minningar skapast sem seint munu gleymast þeim sem það upplifðu. 

Ferill Jónasar spannar alltaf aftur í gamla sveitaballið þegar Jónas var einn af forsprökkum Sólstrandargæjanna og söng lög eins og Rangur maður og Sólstrandargæji. Það var stuttur tími en nokkrum árum seinna eftir hlé frá bransanum sneri Jónas aftur með eigið efni sem kom mörgum á óvart. Þar með djúpum, ógleymanlegum perlum eins og Hafið er svart, Milda hjartað og Faðir og auðvitað partý-stuð-ádeilum eins og Hamingjan er hér, Hleypið mér út úr þessu partýi, Baráttusöngur uppreisnarklansins og svo mætti lengi telja. 

Það er mikil tilhlökkun fyrir þessum tónleikum hjá Jónasi og félögum og spenningur að snúa aftur í Bæjarbíó. Ógleymanlegu kvöldi lofað.