5. júlí 2024 kl 19:00
Vísnapoppbandið FLOTT slær til tónleika í Bæjarbíói 5. júlí. FLOTT skaust upp á stjörnuhimininn árið 2021 með laginu ‘Mér er drull’ sem var valið popplag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. FLOTT var einnig valin sem Bjartasta vonin. Síðan þá hafa þær gefið út hvern smellinn á fætur öðrum en lögin hafa ýmist náð inn á vinsældarlista Rásar 2 og Bylgjunnar.
Hljómsveitin heldur ekki oft tónleika og því tilvalið að grípa tækifærið 5. júlí.
FLOTT eru Ragnhildur Veigarsdóttir á hljómborði, Sylvía Spilliaert á bassa, Eyrún Engilbertsdóttir á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommum og Vigdís Hafliðadóttir söngkona.