800x600-2.png

EMMSJÉ GAUTI- EKKI Í LAGI- Tónleikar og uppistand 16.mai 2024

EMMSJÉ GAUTI-EKKI Í LAGI

Tónleikar og uppistand

16. mai 2024 kl. 19.30


ATH miðar 16. mai eru að klárast og við vorum að henda í aukasýningu 17. mai

Þið sem hafið mætt á tónleika með Gauta vitið að maðurinn dýrkar að hafa gaman á sviði. Blaður milli laga á tónleikum leiddi til þess að hann fór að spreyta sig á nýjum slóðum – í grín heiminum.

Gauti var fenginn inn sem gestakynnir á einni sýningu Púðursykurs (uppistand með helstu kanónum íslenska uppistandsheimsins) en endaði á rúmlega 20 sýningum til viðbótar og hefur nú verið samþykktur af uppistandsmafíunni.

Í Bæjarbíói 16. og 17. maí ætlar Gauti að sameina þessa tvo heima, það er að segja grínið og tónlistina og halda einskonar blandaða uppistandstónleika. Eða tónleikauppistand.

Hann mun flytja rulluna sína af Púðursykurskvöldunum vinsælu, með nýjum djókum inn á milli og svo telja í nokkra af stórsmellum sínum.

Þetta er nýtt, þetta er forvitnilegt, ekki láta þig vant