Una hjarta 800x600@1.5x-100.jpg

UNA TORFA-4. júlí -í samvinnu við Hjarta Hafnarfjarðar

UNA TORFA

4. júlí 2024 kl 19:00

Í samvinnu við Hjarta Hafnarfjarðar

-Forsala á póstlista Tix.is hefst fimmtudaginn 21. mars kl 10:00

-Almenn sala á bæjarbíó.is og tix.is hefst föstudaginn 22. mars kl 10:00

Söngvaskáldið Una Torfa er fædd árið 2000. Una semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið og gaf hún út sína fyrstu plötu í júní árið 2022. Textar Unu eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.