Hjarta 23 TIX Briet 800x600px.jpg

Bríet-12. júlí 2024 -í samvinnu við Hjarta Hafnarfjarðar

Bríet ásamt hljómsveit

12. júlí 2024 kl 19:00

Í samvinnu við Hjarta Hafnarfjarðar

-Forsala á póstlista Tix.is hefst fimmtudaginn 21. mars kl 10:00

-Almenn sala á bæjarbíó.is og tix.is hefst föstudaginn 22. mars kl 10:00

Bríet er margverðlaunuð tónlistarkona best þekkt fyrir lögin sín “Esjan”, “Feimin(n)” og “Rólegur kúreki”. Hún er fjölhæfur hljóðfæraleikari sem skrifar og flytur sín eigin lög, en hún hefur einnig unnið með mörgum tónlistarmönnum í gegnum tíðina. Bríet hefur mestmegnis unnið með lagahöfundinum og upptökustjóranum Pálma Ragnari Ásgeirssyni. 

Fyrsta breiðskífa Bríetar “Kveðja, Bríet” var valin ‘besta plata ársins’ á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2021. Sama ár vann hún einnig í flokkunum ‘söngkona ársins’ og ‘textahöfundur ársins’. 

Bríet hefur verið að semja tónlist og koma fram síðan að hún var unglingur. Hún elskar að kanna tilfinningar og nota tónlistina til að tjá þær.


“Ég elska litinn gulann. Ég elska fólk sem hlær og ég dýrka blóm. Ég var 17 ára þegar ég gaf út fyrstu smáskífuna (EP) mína og öll tónlistin mín er um ástina á einn eða annan hátt”.