FRIMANN_11SPOR_TIX_800x600.jpg

Frimann Gunnarsson-11 spor -Til hamingju! febrúar og mars 2024

Frímann Gunnarsson- 11 spor-Til hamingju!

***MIÐASALA HEFST Á PÓSTLISTA TIX FIMMTUDAGINN 7. DESEMBER KL 10:00. ALMENN SALA HEFST FÖSTUDAGINN 8. DESEMBER KL 10:00***

29. febrúar ; 1. mars; 7. mars; 8. mars 2024

Sýningar hefjast kl 20:00

UM SÝNINGUNA:

Lífskúnstnerinn Frímann Gunnarsson býður upp á glæsilega kvöldstund, smekkfulla af hlátri, tónlist og gleði. Það verður ekki þurrt sæti í salnum! Tónlistaratriði og grín fyrir alla! Ef þú ert ekki með háskólamenntun, engar áhyggjur, Frímann getur auðveldlega komið niður á þitt plan. Hann kann að tala niður til fólks eins og þín! Hann hefur til dæmis samið frábæran og vandaðan prumpubrandara sem allir ættu að geta skilið! Eftir hlé flytur Frímann svo hinn magnaða fyrirlestur „11 Spor Til Hamingju!“ sem getur breytt lífi þínu!*

FYRIRVARI:

*Velgengni og árangur eru ekki tryggð og Frímann Gunnarsson og eignarhaldsfélagið Gratia mentis ehf. fría sig allri ábyrgð á að fyrirlesturinn geri þáttakendur hamingjusamari en þeir voru fyrir þáttöku, enda er hamingjan ekki tæknilega mælanleg eining. Mælt er með því að hver og einn þáttakandi sé í það minnsta sátt/ur með líf sitt fyrir þáttöku og eigi ekki við skæða tilvistarkreppu að stríða. Síkum tilfellum er bent á að tala við lærða sérfræðinga í slíkum efnum, þó svo að flestir sem gefa sig út fyrir að vera það séu ekki starfi sínu vaxnir.