Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Una Torfa

Dagsetningar

  • 03. janúar 2026
  • Kl. 20:00

    Una Torfa er lagasmiður og söngkona úr Vesturbænum sem semur lög á íslensku um ástir, höfnun, hjartasár og hamingju. Textarnir eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.

    Laglínurnar dansa í takt við textana sem Una syngur á meðan hún spilar á gítar og píanó.

    Á tónleikum í Bæjarbíói lofar Una Torfa nánd og ógleymanlegu kvöldi. Með henni verður hljómsveit skipuð af Hafsteini Þráinssyni á gítar, Tuma Torfasyni á bassa og trompet og Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur á trommur. Ekki láta þig vanta!

    18 ára aldurstakmark

    Kaupa miða
    8.490 kr.