Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Stebbi JAK útgáfutónleikar

Dagsetningar

  • 04. september 2026
  • Kl. 20:00

    Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Bæjarbíó þann 4. September.

    Platan “Líttu í kringum þig” inniheldur 10 lög þar sem Stebbi sýnir á sér áður óþekktar hliðar í laga- og texta smíðum.

    Stebbi JAK hefur verið áberandi í tónlistarlífinu undanfarin ár. Hann hefur komið fram í hinum ýmsu heiðurssýningum, Í skúrnum hjá Stebba JAK, söngvakeppni sjónvarpsins og með hljómsveitinni DIMMA og svo má lengi telja.

    Stebbi JAK stígur nú fram með plötuna “Líttu í kringum þig” sem er hans önnur sólóplata. Áður gaf hann út plötuna “JAK” árið 2018

    Á tónleikunum verður platan flutt í heild sinni fyrir hlé.

    Eftir hlé verða flutt lög af fjölbreyttum ferli Stebba.

    Það stefnir í eftirminnilegt kvöld

    Hljómsveit Stebba JAK er skipuð þeim:

    Gunnar illugi sigurðsson – Trommur

    Birkir Rafn Gíslason – Gítar

    Hálfdán Árnason – Bassi

    Birgir Þórisson – Hljómborð

    Hlökkum til að fagna með ykkur.

    Kaupa miða
    7990 kr.