Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Rúnni Júl 80 ára

  • 11. apríl 2025
  • 12. apríl 2025
  • Kl. 20:00

    Synir Rúnars Júlíussonar heiðra minningu Herra Rokk sem hefði orðið 80 ára á árinu.

    Ógleymanleg kvöldstund þar sem ferill rokkskáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans. Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.

    Einvala lið hljóðfæraleikara munu verða bræðrunum, Baldri og Júlíusi til stuðnings á þessum tónleikum sem munu örugglega ekki klikka.

    Kaupa miða
    7.990 kr.

    7.990 kr.