Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Rúnar Júl – 80+ ára

Dagsetningar

  • 18. september 2026
  • Kl. 20:00

    Í tilefni af 80 ára afmæli Rúnars Júlíussonar í fyrra buðu synir hans upp á eftirminnilega  tónleikaröð til heiðurs Herra Rokk.

    Nú verður leikurinn endurtekinn í þetta eina skipti og getur fólk átt von á ógleymanlegri kvöldstund þar sem ferill rokk skáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans. 

    Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.

    Bræðrunum Baldri og Júlíusi til fulltingis verður öflug hljómsveit skipuð Arnari Gíslasyni, Guðna Finnssyni og Birki Rafni Gíslasyni. Þetta verður gríðarleg keyrsla  sem getur ekki klikkað frekar en fyrri daginn.

    Kaupa miða
    7990 kr.