Kl. 20:00
Það er orðin kærkomin árleg hefð að hefja nýtt ár með Unu Torfa í Bæjarbíói. Una stígur þar á svið ásamt hljómsveit sinni og býður upp á hlýja og notalega tónleikastund, þar sem falleg lög, einlæg textagerð og einstök stemning fá að njóta sín.
Nýárstónleikarnir eru kjörið tækifæri til að taka sér smá pásu eftir hátíðirnar, njóta góðrar tónlistar og byrja árið vel.
