Kl. 20:00
Hinn mjög svo goðsagnakenndi söngvari Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur. Hann hendir nú í afmælistónleika 21.03´25
Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir aldamót….
Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg í Bæjarbíó fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur.
Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg
Gítar og raddir : Gunnar þór Jónsson
Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson
Slagverk og raddir : Eysteinn Eysteinsson
Saxófónn : Steinar Sigurðarson
Trompet : Snorri Sigurðarson
Básúna :Samúel J Samúelson
Gestur : Birgir Hákon