Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Jóli Hólm með jól í hjarta❤️

Dagsetningar

  • 19. nóvember 2026
  • Skemmtikrafturinn Sóli Hólm mætir nú til leiks með fimmtu útgáfuna af Jóla Hólm í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Sóli fór af stað með Jóla Hólm árið 2022 og síðan þá hafa tugir þúsunda stólað á að Jóli Hólm komi þeim fordæmalaust jólaskap. 

    Jóli Hólm er hin fullkomna blanda af gríni og söng og fara gestir sýningarinnar allajafna glaðari en annað fólk inn í hátíð ljóss og friðar. 

    Tónlistarsnillingurinn Halldór Smárason hefur verið Sóla til halds og trausts frá upphafi og verður engin breyting þar á þetta árið. Saman leggja þeir metnað í að mæta með alveg nýtt prógram ár hvert og verður öllu tjaldað til á fimm ára afmæli Jóla Hólm. 

    Undanfarin ár hafa mikið færri komist að en vilja svo fólk er hvatt til að vera á tánum þegar miðasala hefst þann 3. september. 

    **Ath! Bæjarbíó áskilur sér rétt til færa miðapöntun til innan salarins til að ná fram betri sætanýtingu. Tilfærslan verður þó aldrei um meira en eitt sætisnúmer til hliðar.**

    18 ára aldurstakmark

    Kaupa miða
    12990 kr.