Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Guðrún Árný – Rólegt og Rómantískt (Óskalagakvöld) 💘

  • 14. febrúar 2025
  • Kl. 20:00

    Á Valentínusardaginn verður Guðrún Árný við píanóið og syngur rólegar og rómantískar dægurlagaperlur fyrir gesti. Hún hefur sungið við ótal tilefni í lífi fólks og nú er tækifærið að rifja upp lögin sem standa ykkur næst.

    Í andyrinu fá gestir tækifæri til að skrifa óskalögin sín niður á blöð og setja í lítinn kassa. Guðrún gerir sitt allra besta við að draga upp úr kassanum á sviðinu og koma eins mörgum lögum að og hægt er. Tilvalið að mæta í góðum félagsskap og hlusta og njóta.

    Kaupa miða
    5.990 kr.

    5.990 kr.