Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Eyþór Ingi & Babies flytja Þursaflokkinn 

Dagsetningar

  • 23. október 2025
  • Kl. 20:00

    „Hér er ekkert hrafnaþing!“

    Eyþór Ingi og Babies hafa áður sameinað krafta sína til að heilla tónlistarunnendur með ógleymanlegum flutningi á lögum og arfleifð hinnar goðsagnakenndu sveitar Íslenska Þursaflokksins.

    Fyrst var tilefnið 40 ára afmæli plötunnar Gæti eins verið. Síðar voru þeir fengnir til að flytja syrpu á heiðurs­hlustendaverðlaunum Egils Ólafssonar, sem síðar varð að samstarfi þeirra við Egil sjálfan og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Þá með heiðurstonleikum Egils Ólafssonar og Sinfó Nord ásamt Ólafi Egils, Diddú og Agli sjálfum – bæði í Hofi og Hörpu.

    Nú snúa þeir aftur – í tilefni af afmæli Bæjarbíós – með glænýtt og eldfimt tónleikaprógram: Best of eða svokallað “Besta Bit Íslenska Þursaflokksins” – frá epískum þjóðlögum til rokksins, allt flutt af mikilli ástríðu og leikni fyrir það hafa þeir hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda. 

    Þetta eru ekki aðeins tónleikar – þetta er ferðalag í gegnum tíma, menningu og töfra tónlistar Þursaflokksins, í þeirri einstöku stemningu sem aðeins Bæjarbíó getur boðið upp á.

    Láttu þetta ekki fram hjá þér fara!

    – „Stígið!“

    18 ára aldurstakmark

    Kaupa miða
    7.990 kr.