Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Dead Sea Apple – 30 ára útgáfuafmæli

Dagsetningar

  • 03. september 2026
  • Kl. 20:00

    Hljómsveitin Dead Sea Apple var starfrækt á árunum 1992 til 2002 og lagðist þá í dvala, en hefur þó rumskað nokkrum sinnum á síðustu 20 árum.

    Árið 1996 kom út fyrsta plata sveitarinnar, Crush og eru því 30 ár frá þeirri útgáfu. Af því tilefni ætlar Dead Sea Apple að halda tónleika í Bæjarbíói og spila plötuna í heild sinni, ásamt nokkrum vel völdum lögum af öðrum plötum sveitarinnar. Eins má jafnvel búast við því að nýtt óútgefið efni fái að hljóma.

    Kaupa miða
    7990 kr.