Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Black Sabbath Rokkmessa

Dagsetningar

  • 01. nóvember 2025
  • Kl. 20:00

    Black Sabbath er frumkvöðla sveit þungarokksins. Hún var stofnuð í Birmingham á Englandi árið 1968 af þeim Tony Iommi (gítarleikara), Bill Ward (trommuleikara), Geezer Butler (bassaleikara) og söngvaranum Ozzy Osbourne. Sveitin hefur haft gríðarleg áhrif á rokksöguna og eftir hana liggja magnaðar plötur og ógleymanlegir slagarar.

    Þann 5. júlí mun sveitin koma saman í hinsta sinn á Villa Park í Birmingham með öllum upprunalegu meðlimum – í fyrsta sinn í 20 ár. Ozzy og félagar ætla að segja það gott eftir þann viðburð.

    Til að marka þessi tímamót verður haldin sérstök Black Sabbath-rokkmessa, þar sem sveitin verður heiðruð með flutningi allra helstu laga hennar frá löngum og áhrifamiklum ferli. Það eru engir nýgræðingar í rokkinu sem kallast til verksins – heldur meðlimir úr sveitum á borð við HAM, Brain Police, Ensími, 13 og Dr. Spock.

    Heiðurssveitin:

    🎤 Söngur: Jens Ólafsson

    🎸 Gítar: Franz Gunnarsson

    🥁 Trommur: Hallur Ingólfsson

    🎸 Bassi: Flosi Þorgeirsson

    Kaupa miða
    7.990 kr.