Kl. 20:00
Bjartmar og Bergrisarnir snúa loksins aftur í Bæjarbíó eftir allt of langa bið.
Það er alltaf einstök stemning þegar Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir stíga á svið og nú gefst loksins tækifæri til að upplifa þá aftur í Bæjarbíói.
Á tónleikunum verður farið yfir glæsilegan feril Bjartmars og flutt mörg af hans vinsælustu lögum sem hafa fylgt landsmönnum í gegnum árin.
Með Bjartmari á sviðinu eru:
- Júlíus Freyr Guðmundsson á bassa og söng
- Birkir Rafn Gíslason á gítar og söng
- Daði Birgisson á hljómborð og söng
- Arnar Gíslason á trommur
Þetta verða tónleikar þar sem húmor, gleði og sígild lög fara saman í kvöldstund sem enginn aðdáandi Bjartmars vill missa af.
Mömmur sem beygla alltaf munninn og kótilettukarlar eru að sjálfsögðu sérstaklega velkomin. Haltu kjafti!
