Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Bíltúr með Jóni

Dagsetningar

  • 10. september 2026
  • Kl. 20:00

    Komdu með okkur í einstakt tónleikakvöld til styrktar uppbyggingu Þorláksskóla. Tónleikarnir bera heitið Bíltúr með Jóni því listamenn kvöldsins eru í sérstöku uppáhaldi hjá Jóni og tónlist þeirra fylgir honum gjarnan í bíltúrum. Jón Kristján verður einn af fyrstu nemendum Þorláksskóla og er aðalástæðan fyrir því að skólinn er settur á fót. 

    Um Þorláksskóla
    Þorláksskóli er nýr sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa í Garðabæ haustið 2026. Skólinn varð til vegna skýrrar þarfar fyrir námsumhverfi sem mætir ólíkum þörfum barna með einhverfu af virðingu, skilningi og sérþekkingu.

    Allur ágóði af styrktartónleikunum rennur til uppbyggingar Þorláksskóla og mun nýtast til að skapa sem besta aðstöðu og umhverfi fyrir nemendur skólans.

    Kaupa miða
    8990 kr.