Kl. 19:00
Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns snúa aftur með glænýja sýningu:
Bíddu bara – ÞETTA REDDAST.
Bíddu bara var feykivinsæl sýning á sínum tíma en nú hefur bara svo margt gerst að það er löngu kominn tími á nýtt trúnó og annað hláturskast sem öll, konur, karlar og kvár geta haft gaman að.
Salka er komin með 2 börn og hefur ekki sofið út í sex ár, Selma er komin á breytingaskeiðið (Guð hjálpi okkur öllum)
Björk er orðin amma og þarf nú að hlusta á börnin segja sér hvernig á að ala upp börn.
Ef þú vilt sjá eitthvað annað en fullkomna Instagrampósta þá er þetta sýning fyrir þig.
Við látum allt flakka og langflest er dagsatt.
Sýningin er sketsa og uppistandssýning með frumsömdum lögum í anda „Bíddu bara“
Þetta höfðu gagnrýnendur að segja um síðustu sýningu.
„Glæsilegur gleðifarsi sem enginn sem nýtur þessa að hlæja ætti að láta hjá sér fara.“
Morgunblaðið
„Sýningin á alveg 5 1/2 stig skilin af 5 mögulegum.“
Morgunblaðið
„Það er bara eins gott, kæri lesandi, að þú fáir þér miða á þessa stórskemmtilegu sýningu, þú bara VERÐUR.”
Lestraklefinn
Og þar hafið þið það! Þið bara VERÐIÐ að koma!
Hlökkum til að hlæja með ykkur.
