Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Dead Sea Apple – 30 ára útgáfuafmæli

Dagsetningar

  • 03. september 2026
  • Kl. 20:00

    Hljómsveitin Dead Sea Apple var starfrækt á árunum 1992 til 2002 og lagðist þá í dvala, en hefur þó rumskað nokkrum sinnum á síðustu 20 árum. 

    Árið 1996 kom út fyrsta plata sveitarinnar, Crush og eru því 30 ár frá þeirri útgáfu. Af því tilefni ætlar Dead Sea Apple að halda tónleika í Bæjarbíói og spila plötuna í heild sinni, ásamt nokkrum vel völdum lögum af öðrum plötum sveitarinnar. Eins má jafnvel búast við því að nýtt óútgefið efni fái að hljóma. 

    Meðlimir Dead Sea Apple eru þeir sömu og stofnuðu sveitina fyrir rúmum 30 árum, og hefur aldrei verið breyting á uppstillingunni. 

    Kaupa miða
    7990 kr.