Kl. 20:00
20 ára Afmælistónleikar Klaufa í Bæjarbíó.
Kántrýpoppsveitin Klaufar fagnar 20 ára afmæli í ár. Hljómsveitin mun halda veglega afmælistónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudaginn 11. september.
Klaufar hafa á þessum tuttugu árum gefið út þrjár hljómplötur og spilað reglulega víða um land við góðar undirtektir. Hljómsveitin spilaði fyrst vinsæl tökulög en hefur síðustu árin farið meira út í að gera frumsamið vandað kántrýpopp.
Mörg lögin hafa náð vinsældum og má þar nefna „Annar maður”, „Búkalú”, „Ást og áfengi” og „Lífið er ferlega flókið”. Klaufar gefa út nokkur ný lög á afmælisárinu og er nýjasta lagið, „Huggun harmi gegn”, farið að hljóma á öllum útvarpsstöðvum landsins og hefur það fengið mjög góðar viðtökur.
Hljómsveitin hlakkar til að hitta aðdáendur sína og lofa alvöru kántrýstemmingu og góðri tónlist. Meðlimir þessarar súpergrúppu eru þeir Guðmundur A. Árnason söngvari og gítarleikari, Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari, Birgir Nielsen trommuleikari og Friðrik Sturluson bassaleikari.
