Ævintýralegt tónleika- og viðburðahús

Hvanndalsbræður

Dagsetningar

  • 22. maí 2026
  • Kl. 20:00

    Strákarnir í Hvanndalsbræðrum eru að keyra sig í gang fyrir árið 2026 og verða þann 22. maí í Bæjarbíó Hafnarfirði, loksins segir einhver…..einn amk. 

    Það verður engu til sparað við að gera tónleikana sem glæsilegasta. Prógrammið hefur verið tekið til gagngerðar endurskoðunar og gamlir hundar dregnir á flot, eftir talsvert hlé. 

    Þetta verður allt á léttu nótunum eins og iðulega og vonast bræðurnir til að sjá gömul og ný andlit, allir hjartanlega velkomnir 😊

    18 ára aldurstakmark.

    Kaupa miða
    7990 kr.