HAM Bbio 800x600.jpg

HAM í Bæjarbíó 28. mars 2024

HAM -

28. mars 2024 kl. 20:00

Hljómsveitina HAM er vart þörf á að kynna fyrir landsmönnum. Hún er ein áhrifamesta rokksveit landsins og jafnframt ein sú lífseigasta. 

HAM lék á sínum fyrstu tónleikum fyrir 36 árum síðan og er hvergi nærri hætt. Hljómsveitin er eins og gott vín og batnar bara með aldrinum. 

HAM nýtur ómældrar virðingar fyrir að fara alltaf sínar leiðir og hefur jafnvel fetað slóð fyrir margar sveitir sem sigldu í hennar kjölfar. Að sjá HAM á tónleikum er einstök upplifun. 

Spurningin er: Ætlar þú að missa af þeirri upplifun?