EAGLES-BÆJARBÍÓ-29.SEPT2.jpg

EAGLES- Marti Matt-Jógvan og Viggi 28. og 29. sept

EAGLES-Matti Matt-Jógvan og Vignir Snær

28. og 29. september 2023 kl 20:00

***AUKATÓNLEIKAR 28. SEPTEMBER KOMNIR Í SÖLU***


The Eagles þarf varla að kynna fyrir neinum en hún er ein vinsælasta hljómsveit fyrr og síðar. The Eagles hefur selt yfir 200 milljón hljómplötur á heimsvísu, en bandið var stofnað árið 1971 og er enn starfandi í dag.

Hver þekkir ekki lög á borð við Hotel California, Take it easy, Lying Eyes, Tequila Sunrise, Desperado og Peaceful easy feeling svo fátt sé nefnt. Hljómsveitin á ótal mörg vinsæl lög sem hafa verið mikið spiluð í gegnum árin.

Þeir íslensku tónlistarmenn sem ætla að flytja þessa mögnuðu slagara Eagles eru þeir Jógvan Hansen, Matthías Matthíasson, Vignir Snær Vigfússon og Gunnar Leó Pálsson og hafa þeir verið fremstir á sínu sviði í mörg ár og ætla þeir þrír að flytja helstu lög Eagles. Enginn sannur Eagles aðdáandi verður svikinn af að láta sjá sig í Bæjarbíói í Hafnarfirði 29. september.